Tólf ferðstyrkir veittir í október // Næsti umsóknarfrestur er 1. des

24 November 2026

Tólf verkefni fengu ferðastyrk úr Tónlistarsjóði í úthlutun útflutningsnefndar í október.

Frestur til að sækja um í síðustu úthlutun ársins, rennur út 1. desember næstkomandi.

‍Sótt er um hér.

‍
Ferðastyrkir eru veittir tónlistarfólk og fagaðilum sem hyggjast sækja sér tækifæri á alþjóðlegum mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum,sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og fagaðila vegna starfstengdra ferða, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.
‍
Eftirfarandi hlutu styrk:
‍
Steingrímur Þórhallsson – Orgeltónleikar á Ítalíu – 75.000 kr.
Rakel Sigurðardóttir – Tónleikaferðalag um Bretland með Ólafi Arnalds – 150.000 kr.
Helga Ragnarsdóttir – Tónleikaferðalag um Bretland – 150.000 kr.
Bríet (Iceland Sync Management ehf.) – Ameríkutúr með Daða Frey – 200.000 kr.
Örlygur Steinar Arnalds – Þátttaka á Fifty Lab Festival – 225.000 kr.
Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson – Útgáfutónleikar og tengslamyndun í London – 300.000 kr.
Herdís Stefánsdóttir – Tónleikar SCAM í London – 150.000 kr.
Hörður Jónsson – Tónleikaferðalag Morpholith í Danmörku og Noregi – 375.000 kr.
Elín Ey – Þátttaka í International Folk Alliance – 300.000 kr.
Vökufélagið – Þátttaka í Folkelarm í Noregi – 300.000 kr.
Salka Valsdóttir – Tvennir tónleikar CYBER í Þýskalandi – 150.000 kr.
Cantoque Ensemble – Þátttaka í Nordisk Harmoni – 600.000 kr.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar