.jpg)
Enn rignir inn áhugaverðum tækifærum fyrir tónlistarfólk hvort sem það er til að kynna, skapa eða tengjast. Hér má finna helstu umsóknarfresti sem hafa lent í innhólfi Tónlistarmiðstöðvar síðastliðnar vikur.
Við mælum með að öll áhugasöm um slík tækifæri skrái sig á póstlista Tónlistarmiðstöðvar.
Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar
Ein framsæknasta tónlistarhátíð á Íslandi, State of The Art, auglýsir eftir umsóknum.
Hátíðin, sem mun fara fram víðsvegar um Reykjavík dagana 6.-11. október, blandar stefnum og straumum og býður upp á ýmis konar tónlist í óhefðbundnu samhengi. Hún er ekki bundin við eina ákveðna tónlistar- eða listastefnu heldur setur sígilda tónlist í nýtt samhengi, blandar saman listafólki úr mismunandi stefnum og setur listafólk sem aldrei hefur unnið saman áður í nýjar aðstæður.
Umsóknarfrestur er til 15. mars.
Sækið um hér
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Upprásina 2026-2027!
Upprásin er mánaðarleg grasrótartónleikaröð Hörpu, Tónlistarborgarinnar Reykjavík og Rásar 2, þvert á tónlistarstefnur og aldur fyrir listafólk og hljómsveitir. Upprásin hófst árið 2023 og hafa borist hundruðir umsókna í tónleikaröðina, en árið 2024 var tekin ákvörðun um að stækka verkefnið og fjölga slottum fyrir hljómsveitir. Tónleikaröðin hefur verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum viðburður ársins og einnig til "Shout out" verðlaunananna hjá Reykjavik Grapevine Music Awards.
Öll áhugasöm hvött til að sækja um.
Frestur til að senda inn umsókn er til og með 30. mars.
Sækið um hér
Big Bang Festival er ævintýraleg evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur. Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist og frítt á alla viðburði. Tónlistarhátíðin leitar nú að skemmtilegum og skapandi tónlistarviðburðum sem ætlaðir er ungum áheyrendum og fá valin atriði þóknun og tækifæri til að vinna undir leiðsögn leikstjóra. BIG BANG fer fram á sumardaginn fyrsta, 23. apríl 2026 í Gerðubergi í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og umsóknir berist fyrir 15. febrúar á netfangið info@listfyriralla.is
Leiðbeinendur verða Birgir Steinn Stefánsson og Bjarki Ómarsson (Bómarz), en þeir stóðu fyrir samskonar námskeiði í fyrra, þar sem færri komust að en vildu. Báðir hafa náð góðum árangri á undanförnum árum, Birgir sem söngvari og lagasmiður fyrir sig og aðra og Bjarki sem höfundur og útsetjari fyrir ýmsa.
Farið verður yfir helstu þætti við sköpun popplaga, auk þess sem þátttakendur fá handleiðslu í að þróa áfram hugmyndir. Fer þetta fram í húsakynnum STEFs að Laufásvegi 40 á milli kl. 17 og 20.
Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og ef aðsókn verður umfram það sem viðráðanlegt getur talist, þá áskilja skipuleggjendur sér rétt til að velja úr umsóknum. Skráningar- og þátttökugjald er hóflegt, eða 3.000 kr.
Öllum er velkomið að taka þátt, en ungir og efnilegir höfundar hafa forgang.
WOMEX auglýsir eftir umsóknum frá listafólki, plötusnúðum, kvikmyndafólki og fagaðilum. Hægt er að sækja um í fjórum flokkum: Showcase, Club Summit, Film og Conference.
Hátíðin, sem verður haldin í Gran Canaria dagana 21.-25. október, er án efa ein alþjóðlegasta tónlistarhátíð í heimi og mikilvægasta ráðstefna heimsstónlistarsenunnar. Þar mætast þjóðlagatónlist, raftónlist frá öllum heimshornum, djass og klassísk tónlist ásamt öllum mögulegum samsetningum af þessum stefnum.
Tónlistarmiðstöð hefur verið með bás á hátíðinni undanfarin ár sem hefur nýst sem bækistöð íslensks listafólks og fagaðila sem sækja hana. Því er um að gera að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna varðandi umsóknarferlið.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar.
Folkelarm, einn af mikilvægustu vettvöngum Norðurlandanna fyrir þjóðlagatónlist og dans, óskar eftir umsóknum. Hátíðin fer fram í Osló 19.-22. nóvember.
Meginmarkmið Folkelarm er að kynna norrænt listafólk innan þjóðlagatónlistar fyrir norskum, norrænum og alþjóðlegum faggestum, og skapa þannig tækifæri fyrir tónlistarfólk og dansara til að koma fram á sviðum jafnt innanlands sem utan.
Umsóknarfrestur er til 1. mars
Sækið um hér
Króatíska faghátíðin SHIP auglýsir eftir umsóknum. Hátíðin er haldin í miðaldakastalaborginni Šibenik dagana 10.-13. september. Hátíðin er á sínu fjórða starfsári, en þrátt fyrir ungan aldur fer SHIP ört vaxandi og er strax orðin mikilvæg fag- og uppgötvunarhátíð fyrir evrópska tónlistariðnaðinn.
Tónlistarmiðstöð var með viðveru á hátíðinni í fyrra ásamt partísprengjunum í Inspector Spacetime. Eins sóttu SHIPliðar Iceland Airwaves heim í fyrra og því er mikill samgangur á milli tónlistargeira landanna þessa dagana.
Umsóknarfrestur er til 16. febrúar
Katalónska faghátíðin Mercat de Música Viva de Vic (MMVV) auglýsir eftir listafólki sem vill koma fram á hátíðinni sem fer fram í borginni Vic, dagana 16.-20. september. Hátíðin er á sínu 38. starfsári og býður hún upp á metnaðarfulla tónlistarráðstefnu samhliða tónleikadagskrá út um alla borg.
Umsóknarfrestur er til 31. Mars.
Bucharest International JAZZ Competition hefur opnað fyrir skráningu. Hátíðin er meðal stærstu jazzkeppna í Evrópu og er hún haldin samhliða EUROPAfest í Búkarest, Rúmeníu, dagana 3.-11. júlí.
Keppnin leitar af sólólistafólki og hljómsveitum (allt að 6 meðlimum) undir 45 ára aldri. Skráningargjald er 140 evrur en hátíðin útvegar allan búnað og hljóðmenn.
Umsóknarfrestur er til 1. Mars