.jpg)
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Silfurbergi í Hörpu í gærkvöld, 18. mars. Verðlaunin, sem haldin eru fyrir tilstilli STEF og SFH, hampa því sem þykir skara fram úr á ári hverju í íslenskri tónlist. Alls voru veitt 30 verðlaun og breidd íslenska tónlistarsamfélagsins því í forgrunni.
Laufey stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins en hún hlaut fjórar styttur. Hún var meðal annars valin vinsælasti tónlistarmaður ársins í netkosningu í samstarfi við RÚV og Rás 2 en þar að auki hlaut hún verðlaun fyrir söng ársins (popp-, rokk- hipphopp-, og raftónlist), plötu ársins (popptónlist) og flytjanda ársins (popp-, rokk- hipphopp-, og raftónlist). Rapparinn Birnir, hljómsveitin Of Monsters and Men, djasstónlistarmaðurinn Tómas Jónsson og tvíeykið Páll Óskar og Benni Hemm Hemm hlutu allir tvenn verðlaun hvor.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti Söru Mjöll Magnúsdóttur verðlaunin fyrir Björtustu vonina. Sara gaf út fyrstu plötu sína A Place to Bloom á síðasta ári og flygdi henni eftir með útgáfutónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur í ágúst síðastliðnum. Hún hefur stimplað sig hratt inn í íslensku djasssenununa sem afburða hæfileikaríkur hammondleikari, hljómsveitastjóri og tónskáld.

Meðal annarra hápunkta kvöldsins var þegar Bragi Valdimar Skúlason, textasmiður og formaður FTT, veitti goðsagnakenndu prog-popp hljómsveitarinnar Todmobile heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026. Todmobile lauk svo hátíðahöldunum með því að flytja lögin Stúlkan og Ég heyri raddir.
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með verðskulduð verðlaun!
Hanna Dóra Sturludóttir
Silva Þórðardóttir

Laufey

Tómas Jónsson

RAKEL
Laufey
Óður

Hvar er Jón? – Úlfur Eldjárn

Crossing Borders – Ásgeir Ásgeirsson

Dyrnar – Birnir

Quiet Presence – Sævar Jóhannsson

All is Love and Pain in the Mouse Parade – Of Monsters and Men

Opus 109: Beethoven, Bach, Schubert - Víkingur Heiðar Ólafsson
A Matter of Time – Laufey
QUACK – gugusar

In The Sound of Breathing – SAGES (Ólafur Arnalds & Loreen)

Day Old Thoughts – Árný Margrét

Watachico – Watachico

Ordinary Creature – Of Monsters and Men
Before we fall, sellókonsert – Anna Þorvaldsdóttir
Eitt af blómunum – Páll Óskar og Benni Hemm Hemm

10 ÞÚSUND – Emmsjé Gauti og Króli

Önnur verðlaun
Það sem jólin snúast um með GDRN, KK og Magnúsi Jóhanni – Kristný Eiríksdóttir

Eitt af blómunum – Páll Óskar og Benni Hemm Hemm
210 með Ómari Guðjónssyni – Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar Guðjónsson

Stórtónleikar Birnis í Laugardalshöll – Birnir
Best á flest – Sounds of America – Magnús Trygvason Eliassen, Tómas Jónsson Davíð Arnar Baldursson og Ragnar Þórhallsson

.jpg)
.jpg)
.jpg)